top of page
Gænn og mjúkur mosi

Tæknin er mennsk

 MENNSK RÁÐGJÖF TRÚIR ÞVÍ AÐ TÆKNIN EIGI AÐ AÐLAGAST MANNESKJUM EN EKKI ÖFUGT. VIÐ NÁLGUMST ÞVÍ ÖLL VERKEFNI ÚT FRÁ SJÓNARHÓLI ÞESS SEM MUN VERÐA FYRIR ÁHRIFUM TÆKNINNAR.

Services

Þjónusta

Mennsk ráðgjöf nálgast öll verkefni út frá sjónarhóli þess sem mun verða fyrir áhrifum tækninnar. Við leggjum okkur fram við að skilja hver þörfin er og móta lausnina þannig að hún skapi sem mest virði svo tekið verði á móti henni opnum örmum. Þannig minnkum við gríðarlega sóun í tæknilegri uppbyggingu og innleiðingu.

Þjónustuhönnun
(service design)

Til að geta boðið upp á samfellda þjónustuupplifun út frá viðskiptavinum er mikilvægt að stilla saman strengi innan fyrirtækis þannig að allir séu að vinna að sama markmiði.

Vinnustofur

Þjónustu- og upplifunarhönnun er samsköpun (co-creation).

Notendarannsóknir
(user research)

Besta uppsprettan að því hvaða þjónusta nær árangri eru þjónustuþegarnir. Hvað eru þeir að glíma við? Hvað færir þeim virði? Hvernig?

Kennsla/þjálfun

Fyrir teymi sem vilja taka boltann og hlaupa með hann.

Upplifunarhönnun (experience design)

Hönnunarhugsun (design thinking) er aðferðafræði sem við notum sem nýtir tól og tæki hönnunar til að mæta þörfum viðskiptavina.

Greining

Að skilja hver þörfin er og hvaða virði má bjóða áður en hlaupið er af stað.

Magga Dora

Magga Dóra

Stafrænn hönnunarleiðtogi

Magga Dóra er með bakgrunn í sálfræði og tölvunarfræði og hefur unnið við stafræna þróun frá því fyrir aldamót.  Eftir að hafa leitt stafræna þjónustu og innri viðmót hjá Símanum réð hún sig til starfa hjá stafrænu hönnunarstofunni MadPow í Boston, MA. Þar vann hún fjölda verkefna fyrir stórfyrirtæki í heilbrigðis-, menntunar- og fjármálaiðnaði og leiddi teymi í verkefnum sem voru allt frá því að móta stafræna stefnu fyrirtækja til endurhönnunar á stafrænni þjónustu. 
Fyrir utan að starfa við stafræna hönnun, hefur Magga Dóra kennt tölvunarfræðinemum við HÍ og HR notendamiðaða hönnun og upplifunarhönnun nánast sleitulaust frá 2003.

graenn-gradient---mennsk.png
AR_301_edited_edited.jpg

Halla
Stafrænn ráðgjafi

Halla hefur unnið að stafrænni þróun síðan í dot-com bólunni um aldamótin í London, Englandi, þar sem hún starfaði við vefþróun hjá stafrænu tímariti, og vefsíðugerð fyrir ýmis fyrirtæki. Leið hennar lá til Proteus, sprotafyrirtækis í fjölmiðla- og fjarskiptageiranum í Bandaríkjunum þar sem hún var viðskiptastjóri fyrir Disney og THQ Wireless, meðal annarra. Eftir heimkomu 2008 hefur hún tekið að sér þróunarstjórn vefdeildar Nova, viðskipta- og markaðsstjórn fyrir Hugsmiðjuna og stýrt vef Háskólans í Reykjavík. 

Reynsla hennar er víðtæk og í gegnum árin hefur hún einnig séð um upplýsingahönnun og 

-högun, verkefnastjórn sem og þarfagreiningar og stefnumótun. 

graenn-gradient---mennsk.png
_A8A2581-2-Edit_square.jpg
Halla

Mennskráðgjöf

Mennsk ráðgjöf nálgast öll verkefni útfrá því hverja þau snertir. Hvort sem það eru viðskiptavinir sem nýta sér stafrænar lausnir eða starfsfólk sem styður við lausnirnar. Öll ný vöruþróun hefur í för með sér breytingar fyrir þá sem taka þátt í að þiggja og veita þjónustuna. Með aðferðafræði hönnunarhugsunar (design thinking) og áralanga reynslu að vopni er engin breyting eða nýþróun of flókin til að ekki er hægt að koma henni á með samvinnu hagaðila.

Mennsk ráðgjöf var stofnuð 2020 sem byggir á meira en 20 ára reynslu við stafræna vöruþróun hérlendis og erlendis. Mennsk ráðgjöf nýtur stuðnings og snilldar frábærra sérfræðinga sem kallaðir eru til þegar verkefnin þarfnast þeirra. 

 

Hildur-profile-square_sm.jpg

Hildur Björg 

Stafrænn hönnuður

Berglind-profile-square_sm.jpg

Berglind Ósk

Notendamiðaður textasmiður

Sja-profile-square_sm.jpg

SJÁ - óháð ráðgjöf

Notendarannsóknir
Stafræn stefnumótun

ambersand.jpg

Og fleiri...

Öryggi, aðgengi, vefun, forritun, skjáhönnun...

umsagnir

Umsagnir

logo_svart_s.jpg
Hildur Sveinsdóttir,
deildarstjóri viðskiptatengsla

Magga Dóra kom með mjög faglega og sterka sýn á verkefnið sem hún vann með okkur. Verkefnið einkenndist af jákvæðum samskiptum, skipulögðum vinnubrögðum og færni við að stíga inn í margslungið verkefni ásamt því, sem er ekki síður mikilvægt, að miðla þeirri þekkingu og reynslu sem hún hefur aflað sér í sínum störfum. Allt þetta nýttist okkur vel í vegferðinni við að sýna frumkvæði í þjónustu, koma til móts við þarfir viðskiptavina okkar og umfram allt viðhalda ánægju þeirra.

PayAnalytics_LOGO_RGB.png
Sigurjón Pálsson, framkvæmdastjóri

Einn af styrkleikum PayAnalytics er hversu auðvelt er fyrir notandann að átta sig á því hvað á að gera án þess að fletta stöðugt upp í handbókinni eða láta kenna sér það. Mennsk ráðgjöf lék lykilhlutverk í því að koma okkur á þann stað.

LV_NationalPowerCompany_grey.png
Tinna Traustadóttir, frkvstj
Sölu og þjónustu

Ráðgjöf [Mennskrar] við þverfagleg teymi innan fyrirtækisins hefur verið ómetanleg. Í flóknum verkferlum sem snerta marga hagaðila, innanhúss sem utan, hefur Magga Dóra ekki aðeins fram að færa tæknilega færni og sannreyndar “Design Thinking” aðferðir heldur nær einnig að lesa í aðstæður hverju sinni. Þannig hefur samvinnan við hana stuðlað að því að ólík sjónarmið í teyminu fái þann hljómgrunn sem nauðsynlegt er og útkoman verður eins og best verður á kosið.

image001_edited.png
Dagný Laxdal, sviðsstjóri Viðskiptalausnasviðs

Fumlaus fagmennska og mikil þekking skilaði okkur á betri stað til að forgangsraða, taka ákvarðanir, fá meiri innsýn og mæta okkar notendum betur.

Við erum ennþá að vinna með endurgjöfina frá henni.

Mæli með.

logo_upphaflegt-15_edited_edited.png
Sigurjón Ólafsson, sviðsstjóri Þjónustu- og þróunarsviðs

Hafnarfjarðarbær vinnur að stafrænni umbreytingu í þjónustu bæjarins. Forsenda árangurs á þeirri leið er að hafa skýrt skilgreinda ferla þar sem leið notandans er vörðuð og tækifæri greind til að bæta þjónustu og stjórnsýslu bæjarins. Það hefur verið ómetanlegt að eiga Mennska ráðgjöf að og þá reynslu sem þar býr í þessum verkefnum. Ráðgjöfin er allt í senn árangursrík, fagmannleg og úrræðagóð. Og samskiptin sérlega ánægjuleg.

HI_takn_gratt_2x.png
Anna María Einarsdóttir, 
Vefstjóri

Háskóli Íslands vinnur að endurbótum á vefsvæðum skólans. Eftir meðmæli annarra vefstjóra fengum við Mennsk til liðs við okkur og sjáum ekki eftir því. Þekking Möggu Dóru og Höllu á vefmálum er yfirburðar góð og fagmennska framúrskarandi. Þær eru ósparar á að miðla þekkingu sinni og samvinnan er í senn gefandi og skemmtileg. Ég get hiklaust mælt með samstarfi við Mennsk.

PayAnalytics_LOGO_RGB.png
HI_gratt_2x.png
LV_NationalPowerCompany_grey.png
memaxi.png
logo_svart_s.jpg
image001_edited.png
logo_upphaflegt-15.png
Untitled%202_edited.png
RLS_Merki_BW.png

Greinar

Tölum saman!

Heldurðu að við gætum unnið vel saman og náð árangri?
Þá skulum við tala saman.

Takk fyrir skeytið! Við höfum samband

bottom of page